Stjórn Landsvirkjunar segir að skoðun óháðra aðila á athugasemdum Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra, um stjórnarhætti hafi leitt í ljós að stjórnin hafi ekki farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt eða heimildir. Þá hafi Herði ekki verið haldið frá umræðu um rekstur félagsins og stjórnin hafi ekki skipt sér af daglegum rekstri Landsvirkjunar.