Á annað hundrað sagt upp hjá ríkinu - margir ráðnir aftur

Á annað hundrað var sagt upp hjá ríkisstofnunum í hópuppsögnum í október, meirihlutinn verður endurráðinn. Atvinnuleysi eykst á næstu mánuðum.Vinnumálastofnun fékk fimm tilkynningar um hópuppsagnir í október, alls náðu þær til 281 starfsmanns. Meirihlutinn er opinberir starfsmenn, en hluti þeirra fær störf sín aftur.„Þetta eru tvær stórar opinberar stofnanir sem verið er að leggja niður og renna inn í Stofnun atvinnuveganna um áramótin. Og það er langstærsti hlutinn af þessu,“ útskýrir Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnunar.Í þeim hópi er 171 sem hefur starfað hjá Matvælastofnun, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs, en þær verða að Stofnun atvinnuveganna, en alls var 177 sagt upp hjá ríkisstofnunum. FÉLAGSÞJÓNUSTA, MATVÆLAFRAMLEIÐSLA OG SVEITARFÉLÖGIN 41 missti starf sitt
Á annað hundrað sagt upp hjá ríkinu - margir ráðnir aftur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar