Nokkuð hefur verið dregið úr innlögnum sjúklinga á Vog tímabundið vegna þess að færri læknar en vanalega eru við störf. Nýir læknar eru væntanlegir, segir Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir forstjóri í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu.Hún segir að faglegra og öruggara sé talið að sinna færri á meðan nýir læknar eru að koma til starfa. Þeir þurfi tíma til að setja sig inn í aðstæður, verklag og starfsemina í heild. Nú liggja tíu á Vogi.Innlögnum verði fjölgað á ný eftir því sem mönnun styrkist og nýir læknar öðlist meiri reynslu. Þannig megi tryggja öryggi þeirra sem leiti til SÁÁ. Önnur þjónusta segir Baldvina að haldi áfram með góðum hætti, meðal annars sé eftirmeðferð á Vík og göngudeildarmeðferð á Von.Baldvina vill ekki tjá sig um kröfur í undirskriftasöfnunum afsögn stjórnar, það sé