Elías Pétursson ætlar að leggja til við bæjarstjórn Grindavíkur að líkamsleifar Lúðvíks bróður hans verði grafnar upp úr sprungunni sem hann féll niður í janúar 2024. Hann vann við að fylla í sprunguna þegar hann hvarf.Elías kveðst í færslu á Facebook hafa snemma sagt öruggara að grafa niður að sprungunni frá hlið og þaðan að þeim stað þar sem líklegast er að Lúðvík liggi. Ekki verið ráðist í niðurrif hússins við Vesturhóp 29 eða fyllingu sprungunnar fyrr en reynt hafi verið til þrautar.Þá þurfi enginn að leggja sig í þá hættu sem fylgir því að síga niður í sprunguna heldur vinna jarðvegsverkefni sem vitaskuld krefjist góðs skipulags og varfærni.„Enginn á að leggja líf sitt í óþarfa hættu til að sækja Lúlla. Það höfum við aldrei beðið um og munum aldrei biðja um,“ segir Elías. „Ömurlegt ve