Bróðir Lúðvíks Péturssonar, sem lést þegar hann féll niður um jarðfall í Grindavík árið 2024, segir ákvörðunina um að hætta að leita að líkamsleifum Lúðvíks vonbrigði og að hún kalli á svör. Hann hafi sjálfur lagt til lausnir en þær hafi ekki verið teknar til greina. Hann, fyrir hönd fjölskyldunnar, muni beina erindi að nýju til bæjarstjórnar Grindavíkur.