Íris Helga Jónatansdóttir segist ekki hafa hvatt mann til þess að ata skít á heimili eins mannanna sem sakað hafa hana um umsáturseinelti. Hún er ásökuð um að hafa beitt mennina umfangsmiklu umsáturseinelti á árunum 2022 til 2025.Aðalmeðferð í máli hennar hófst í dag og stendur fram í næstu viku. KRAFA GERÐ UM FRÁVÍSUN Einn maður er meðákærður í málinu og er honum gefið að sök að hafa aðstoðað Írisi Helgu í umsáturseinelti sínu. Fram kom í málinu í dag að hann er sakaður um að hafa farið að heimili fyrrum sambýlismanns Írisar Helgu og að hafa þar makað skít á heimili hans og sambýliskonu hans.Verjandi mannsins gerði kröfu um að máli hans yrði vísað frá dómi þar sem óljóst væri hvort allir ákæruliðir málsins tengdust hans hlutdeild í málinu. Dómari hefur ekki tekið afstöðu til þess.Íris