„Þetta er bara eitthvað svona skrýtið sem manni fer að þykja vænt um“

Grafíska hönnuðinum Mána Sigurðssyni, sem hefur búið öll sín fullorðinsár í miðborginni, og kærustunni hans var brugðið þegar þau tóku eftir að teikningar af bílum með fallega mannlega ásjónu í gluggum bílastæðahúss við Vitatorg voru nánast allar á bak og burt fyrir fáeinum dögum, án samráðs við íbúa.Parið býr í næsta nágrenni við bílastæðahúsið og ákvað að setja undirskriftarsöfnun í gang til varnar myndunum. Máni segir bílamyndirnar eitt það sem hafi fylgt honum frá því hann var krakki.„Maður hefur séð þetta gerast annað slagið í borginni að eitthvað sem hefur alltaf verið uppi hverfi. Til dæmis bindishnútamyndin á húsi Sandholts við Laugaveg. Þetta eru svona hlutir sem verða að einhvers konar minnismerkjum,“ segir Máni.„Það er leiðinlegt að sjá þetta hverfa og mér finnst óþarfi að láta
„Þetta er bara eitthvað svona skrýtið sem manni fer að þykja vænt um“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar