Matthías Daði Guðbjartsson hefur verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni eftir að hafa skallað lögreglumann í höfuðið í Reykjanesbæ. Dómur féll í Héraðsdómi Reykjaness í dag, 2. nóvember. Atvikið átti sér stað aðfaranótt 16. ágúst 2025 fyrir utan skemmtistað í Reykjanesbæ. Lögregla hafði afskipti af Matthíasi eftir að dyraverðir óskuðu eftir aðstoð vegna framkomu hans....