Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sér ekki ástæðu til að elta ólar við færslu Heimis Más Péturssonar á samfélagsmiðlinum X, þar sem hann eggjaði Frakklandsforseta til að hóta kjarnorkuvopnaárás á Rússland. Hún hafi hins vegar mun meiri áhyggjur af því að „fyrrum forráðamaður íslenskra stjórnvalda“ hafi dreift færslu frá utanríkisráðherra Rússlands.Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði utanríkisráðherra út í færslu Heimis Más í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi. Heimir Már baðst afsökunar á færslunni eftir að um hana var fjallað og eyddi reikningi sínum á X.Stefán Vagn sagði færslu Heimis Más grafalvarlega í ljósi þess að hann gegni ábyrgðarstöðu fyrir einn af þremur ríkisstjórnarflokkum. Velti hann því upp hvort færslan geti valdið Íslandi orð