Brýn þörf er á uppbyggingu æfingarsvæða Brunamálaskólans fyrir slökkvilið hérlendis. Hvergi er að finna aðstöðu fyrir öll lögbundin verkefni þeirra á sama tíma og faglegar kröfur hafa aukist.Slökkviliðsmenn geta hvergi æft sig í öllum þeim verkefnum sem þeir þurfa að fást við og faglegar kröfur hafa aukist. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu HMS og Félags slökkviliðsmanna á Íslandi.Verkefnisstjórinn Birgir Finnsson, slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins og formaður Félags slökkviliðsstjóra, segir ekkert æfingarsvæði bjóða upp á aðstöðu fyrir öll lögbundin verkefni slökkviliða og þau hæfniviðmið sem lögð eru til grundvallar í námskrá Brunamálaskólans og nemendum beri að uppfylla.„Auðvitað er það áhyggjuefni að við séum með slökkvilið í landinu þar sem slökkviliðsmenn hafa f