Harðar deilur urðu á Alþingi í dag vegna ummæla Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins, um kjarnorkuvopn og stríðið í Úkraínu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði afstöðu íslenskra stjórnvalda til kjarnorkuvopna skýra og benti á að Heimir Már hefði beðist afsökunar. Málið kom til umræðu á Alþingi þegar Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði utanríkisráðherra út í ummæli Heimis...