Netárás var gerð á tugi matvöruverslana og verslun IKEA í Belgíu í dag. Hitastig kæli- og frystiskápa var hitað upp úr öllu valdi. Svipaðar árásir voru gerðar í Svíþjóð, Eistlandi og Lúxemborg. Í síðasta mánuði urðu þrjár franskar stórmarkaðskeðjur fyrir netárás með svipuðum hætti. MATVÖRUVERSLANIR OG IKEA URÐU FYRIR NETÁRÁSUM Stórmarkaðskeðjan Carrefour í Belgíu segir netárásina hafa truflað starfsemi í 15 af 700 verslunum. „Þetta er tölvuárás, það er engin önnur ástæða,“ sagði Mich Vergauwen, talsmaður Carrefour.Delhaize greindi jafnframt frá því að bilun í tölvukerfi hefði haft áhrif á kælibúnað í tugum verslana keðjunnar.Fréttamaður AFP-fréttaveitunnar sagði kæli- og frystiskápa í einni af búðum Deilhaize í Bormeerbeek, sem er norðaustur af Brussel, vera tóma. Á þeim hafi verið skil