Tyrknesk stjórnvöld hafa í fyrsta sinn opnað sendiráð á Íslandi. Þau óskuðu þess í febrúar að fá að opna sendiráð hér. Það gerðist á símafundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Hakans Fidans, utanríkisráðherra Tyrklands. Nú er sendiráðið orðið að veruleika.Í dag gekk Mustafa Levent Bilgen á fund Höllu Tómasdóttur forseta og afhenti henni trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Tyrklands á Íslandi. Halla segir á Facebook-síðu embættisins að það séu tímamót að Tyrkir hafi í fyrsta sinn opnað sendiráð á Íslandi og segir það hafa verið ánægjulegt að taka á móti Bilgen.„Við áttum gott samtal um samskipti þjóðanna, stöðu heimsmála og mikilvægi samtals og samvinnu á tímum mikilla áskorana.“