Íris Helga Jónatansdóttir kannaðist við lítið af því umsáturseinelti sem hún er sökuð um gegn þremur karlmönnum, sambýliskonu eins þeirra og börnum tveggja þeirra og fjölskyldu.Fyrsti dagur aðalmeðferðar fór fram í dag í Héraðsdómi Reykjaness. Ákæran gegn Írisi Helgu er löng og telur hátt í sjötíu ákæruliði. Réttað var í málinu þangað til klukkan 13:00 og þá tekið hlé og hefst málið að nýju 13:30.Dagurinn hefur að mestu farið í það að taka skýrslu af Írisi Helgu sjálfri þar sem ákærandi hefur borið undir hana atvik sem eiga að hafa átt sér stað á umræddu tímabili.Helst hafa atvikin sem farið var yfir í dag tengst manni sem hún var í sambandi við þangað til árið 2021. Farið var yfir hvern ákærulið fyrir sig og þeir bornir undir Írisi Helgu. Áætlað er að aðalmeðferð taki allt að sex daga og