71 sakborningur, 6 tungumál og 2 dómssalir – Flestir neita sök

Það var þétt setið í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag við þingfestingu máls sem tengist fjársvikum og peningaþvætti. Þetta kann að vera það sakamál Íslandssögunnar þar sem flestir eru ákærðir.Tveir eru ákærðir fyrir að hagnýta sér kerfisvillu hjá Reiknistofu bankanna í október í fyrra til að svíkja 95 milljónir út úr Landsbankanum. Fjórir til viðbótar eru ákærðir fyrir að útvega annað fólk til að þvætta féð. 64 eru ákærð fyrir að þvætta féð.Þeir tveir sem eru ákærðir fyrir stærstan hlut máls neituðu báðir sök, mótmæltu upptöku og bótakröfu og kröfðust sýknu af einkaréttarkröfu Landsbankans.Hópur ákærðu er talinn sá fjölmennasti sem hefur verið við þingfestingu til þessa og þurfti því að skipta sakborningum upp í sjö hópa. Hópurinn var fjölbreyttur en fyrir dóminn hafa komið Íslendingar og erle
71 sakborningur, 6 tungumál og 2 dómssalir – Flestir neita sök

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar