Bókaunnendur geta byrjað að hita upp fyrir jólabókaflóðið í Gerðubergi miðvikudaginn 4. nóvember þegar þrjár nýútkomnar bækur verða teknar til kostanna. Rithöfundarnir Björn Halldórsson og Guðrún Eva Mínervudóttir ásamt þýðandanum Ingunni Snædal mæta í Borgarbókasafnið og ræða nýjustu verk sín. Sunna Dís Másdóttir, rithöfundur og fyrrverandi bókmenntagagnrýnandi Kiljunnar, heldur utan um spjallið. Björn segir frá skáldsögunni Ókunnugt fólk sem gerist...