Þingflokksformaður Flokks fólksins segir að Heimir Már Pétursson njóti fulls trausts þingflokksins. Heimir Már hafi beðist afsökunar á umdeildri færslu á samfélagsmiðlinum X og sú afsökunarbeiðni hafi verið tekin til greina.Heimir Már svaraði færslu Emmanuels Macron Frakklandsforseta um Úkraínustríðið fyrir helgi. Hvatti hann Frakklandsforseta til að senda hermenn á vígvöllinn í Úkraínu og hafa kjarnorkuvopn til reiðu. Hann baðst opinberlega afsökunar á færslunni eftir að fjallað var um málið í fjölmiðlum og eyddi reikningi sínum á X.Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksins, sagði að færsla Heimis Más hefði ekki verið rædd á þingflokksfundi í morgun. Hún segir að hann hafi beðist afsökunar á færslunni og að málinu væri lokið af hálfu flokksins. Hann njóti enn þá fulls t