Fiskikör finnast á túnum og fiskvinnslur taka þau í óleyfi

Fiskikör eru ekki ókeypis og á hverju ári gerir Síldarvinnslan í Neskaupstað út leitarmenn sem fara um sveitir og bryggjur og endurheimta kör merkt fyrirtækinu.Arnar Richardsson, rekstrarstjóri hjá Berg-Hugin, dótturfélagi Síldarvinnslunnar, segir að tímakaupið við að veiða fiskikör jafnvel á túnum sé hátt og því sé leitað árlega. „ÞEIR REYNA AÐ SELJA OKKUR ROLLUR Í STAÐINN“ „Í þessum karaleiðangri fórum við á Snæfellsnesið, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesið. Við förum yfirleitt tveir saman í góðan bíltúr. Bændurnir hafa tekið kör frá okkur og fyllt þau af vatni þannig að skepnurnar fái nú eitthvað að drekka. Við finnum þetta úti á túnum, já,“ segir Arnar. Leitarmenn hitti sjaldnast bændurna en það kemur fyrir. „Þá er þetta bara oft gott spjall og þeir reyna að selja okkur rollur í staði
Fiskikör finnast á túnum og fiskvinnslur taka þau í óleyfi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar