281 sagt upp í hópuppsögnum

Alls var 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum sem tilkynntar voru til Vinnumálastofnunar í síðasta mánuði. Þar af unnu 177 hjá ríkisstofnunum, 50 hjá Reykjavíkurborg, 40 í félagsþjónustu og 13 hjá fyrirtæki í matvælaframleiðslu.Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar. Meðal þeirra uppsagna sem sagt var frá í síðasta mánuði má nefna að Reykjavíkurborg sagði upp 50 starfsmönnum í þriðju og síðustu uppsagnahrinu ársins. 17 misstu vinnuna hjá Sorpu og öllum starfsmönnum hjálpartækjamiðstöðvar Sjúkratrygginga var sagt upp.
281 sagt upp í hópuppsögnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar