Fjárkúgun er eitt af því sem er til skoðunar í rannsókn lögreglu á manndrápi í Breiðholti um helgina. Feðgar eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins.Samkvæmt heimildum fréttastofu er sonurinn, sem er 34 ára, fæddur 1992 og er nú er í einangrun, öryrki, meðal annars vegna andlegra veikinda. Hann hafði fengið örorkubætur greiddar út um helgina og samkvæmt heimildum er til skoðunar hvort þeir sem hann stakk hafi reynt að kúga fé út úr honum.Faðirinn sem er á sextugsaldri er sömuleiðis í haldi lögreglu, en sonurinn leitaði liðsinnis hans til að verjast fjárkúguninni, samkvæmt heimildum fréttastofu. Þeir verða í gæsluvarðhaldi til 9. nóvember.Til átaka kom á milli þeirra og tveggja manna. Sonurinn beitti þar hnífi og lést annar þeirra sem fyrir stungunum varð. Hinn særðist talsvert og er á sjúkrahús