Feðgar voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í gærkvöld í tengslum við manndráp í Breiðholti aðfaranótt sunnudags. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni leikur grunur á að um einhvers konar uppgjör hafi verið að ræða. Sonurinn er grunaður um að stinga tvo menn sem hafi reynt að kúga af honum fé til lengri tíma.