Tíu nemendur útskrifuðust af leitar og björgunarkafaranámskeiði sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hélt í samstarfi við Landhelgisgæsluna og aðra viðbragðsaðila. Námskeiðinu lauk föstudaginn 30. október eftir fimm vikna þjálfun. Samstarf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslunnar og ríkislögreglustjóra um námskeiðið hefur staðið um árabil. Að þessu sinni voru engir nemendur frá ríkislögreglustjóra en tveir komu frá Brunavörnum Suðurnesja. Á síðasta námskeiði, sem haldið var fyrir...