Tæplega 30 bílar skemmdir í skjóli nætur

Á þriðja tug bíla, hið minnsta, er skemmdur eftir að maður eða hópur fólks gekk um á Seltjarnarnesi og braut bílrúður.Bíleigendur uppgötvuðu skemmdirnar í morgun og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar verknaðinn. Bílunum sem urðu fyrir barðinu á skemmdarvarginum hafði verið lagt við Kirkjubraut og Nesveg.Unnar Már Ástþórsson aðalvarðstjóri segir að lögregla sé að reyna að ná utan um umfangið. Hann segir vitað til þess að tæplega 30 bílar hafi verið skemmdir.Skemmdarvargurinn er óþekktur og reynir lögregla að afla upplýsinga sem varpað getað ljósi á hver var að verki. Meðal annars standa vonir til að ferðir mannsins hafi náðst á öryggismyndavélar. Unnar óskar aðstoðar frá fólki með slíkar vélar. „Við værum ákaflega þakklátir að fá það myndefni.“Stutt er síðan fréttir bárust af því að s
Tæplega 30 bílar skemmdir í skjóli nætur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar