Fertugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir fíkniefnalagabrot eftir að lögregla fann 267 kannabisplöntur í bifreið hans á Vesturlandsvegi í sumar. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í desember. Samkvæmt ákæru lögreglustjórans á Vesturlandi er manninum gefið að sök að hafa þriðjudaginn 21. júlí síðastliðinn haft kannabisplönturnar í vörslu sinni og flutt þær í bifreið. Akstur bifreiðarinnar var stöðvaður á Vesturlandsvegi...