Þröng á þingi í Héraðsdómi Reykjavíkur

Mikill fjöldi fólks er saman kominn í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag við þingfestingu í stóru fjársvika- og peningaþvættismáli. Óhætt er að fullyrða að sjaldan hafi verið svo þröngt á þingi í dómstólnum og langur dagur fram undan.70 eru ákærðir. Tveir menn á fertugsaldri eru taldir bera mesta sök. Þeir neituðu sök við fyrirtökuna í morgun. Báðir eru ákærðir fyrir peningaþvætti, umboðssvik og til vara fyrir fjársvik fyrir að nýta kerfisvillu hjá Reiknistofu bankanna til að hafa 95 milljónir króna af Landsbankanum.Fjórir eru ákærðir fyrir að fá 64 einstaklinga til að þvætta féð. Þeir sem þvættu féð eru ákærðir fyrir peningaþvætti.Starfsmenn dómstólsins reyna að halda utan um skipulag en ljóst er að mikið verk er fyrir höndum. Barbara Björnsdóttir er dómari í málinu en ákæran er 149 blaðsíður o
Þröng á þingi í Héraðsdómi Reykjavíkur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar