Samkaup hafa samið um kaup á Fjarðarkaupum í Hafnarfirði, sem hafa verið rekin sem sjálfstæð matvöruverslun um áratuga skeið. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins en kaupverð hefur ekki verið gefið upp. Þetta kemur fram í tilkynningu fasteignafélagsins Kaldalóns til Kauphallarinnar. Kaldalón hefur samhliða samið um kaup á öllu hlutafé í 1717 ehf., sem á fasteignina að Hólshrauni 1 þar sem...