Aðalmeðferð er hafin í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur sem ákærð er fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, skjalafals, rangar sakargiftir og ærumeiðandi aðdróttanir á árunum 2022 til 2025.Íris Helga mætti í dómssal í Héraðsdómi Reykjaness rétt fyrir klukkan níu í morgun. Aðalmeðferð hófst í dag í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur sem er ákærð fyrir umsáturseinelti gagnvart fjórum ásamt börnum þeirra.Hún er sögð hafa stundað umsáturseinelti gegn þremur karlmönnum, sambýliskonu eins þeirra og fjölskyldu hans.Hún á meðal annars að hafa sakað menn opinberlega um barnaníð, ofbeldi og nauðgun. Þá er hún sökuð um að hafa komið að heimili eins mannsins með krukku sem í á að hafa verið fóstur sem hún hefði misst.Íris Helga er einnig sökuð um barnaverndarlagabrot þar sem brot hennar eru einnig sögð haf