Samkaup eignast fjölskylduverslunina Fjarðarkaup í Hafnarfirði ef Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir kaupin. Verslanakeðjan hyggst reka Fjarðarkaup áfram en bæta við apóteki, bakaríi og sérverslun með kjöt í versluninni.Drangar tilkynntu í dag að dótturfélagið Samkaup hefði gengið frá samningi við eigendur Fjarðarkaupa um að eignast verslunarrekstur félagsins. Fjarðarkaup bætast þá við verslunarkeðjurnar Nettó, SPAR, Prís, Heimkaup, 10-11, Kjörbúðina og Krambúðina í rekstri Dranga.Fjarðarkaup er rúmlega hálfrar aldar gömul verslun og sennilega þekktasta fjölskyldufyrirtækið þegar kemur að rekstri matvöruverslana. Stórar keðjur hafa áður freistað þess að kaupa Fjarðarkaup en þá varð ekkert af því.Í tilkynningu Dranga segir að kaupin séu gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppnisef