Kolbrún María Garðarsdóttir og Egill Rúnar Halldórsson byrjuðu þetta ár ásamt stórfjölskyldu Kolbrúnar á Tenerife. Sólveig Hulda, mamma Kolbrúnar, hafði fagnað fimmtugsafmæli á liðnu ári og mikil tilhlökkun ríkti hjá fjölskyldunni því von var á þremur börnum á nýja árinu. > Bara eins og í draumi. Allt leit vel út og allir ánægðir. Þetta var eiginlega bara fullkomið og maður var orðinn svolítið spenntur fyrir hvað var framundan. Sem betur fer fékk systir mín hugdettu að fara í myndatöku. Í augnablikinu var þetta venjuleg fjölskyldumyndataka en núna þegar maður skoðar þetta þá er þetta gull, segja Egill og Kolbrún. SUNNUDAGURINN ÞEGAR ALLT BREYTTIST Fjölskyldan var í sólinni fram í janúar og þann 17. febrúar kom fyrsta barnið í heiminn. Sólveig Hulda fór suður til að hitta nýja barnabarn