Vegagerðin varar vegfarendur við miklum vindi á norðanverðu Snæfellsnesi, fjallvegum á Vestfjörðum og Tröllaskaga frá því síðdegis í dag fram á seinni partinn á morgun eða annað kvöld. Samkvæmt veðurspánni getur vindur farið yfir 25 metra á sekúndu í hviðum. Veðurstofan hvetur ökumenn til að fara varlega, einkum ef ökutæki þeirra eru viðkvæm fyrir vindi. Vegagerðin sendi frá sér svohljóðandi viðvörun:„Í dag, mánudag, hvessir úr suðri og má búast við hviðum um og yfir 25 m/s á norðanverðu Snæfellsnesi, fjallvegum á Vestfjörðum og Tröllaskaga frá því síðdegis. Búast má við að svona hvasst verði á þessum stöðum þar til seinnipartinn á morgun, þriðjudag, eða annað kvöld.“