Gengu í minningu Carlos Manzo sem barðist gegn glæpagengjum

Í gær gengu hundruð manns fylktu liði í borginni Uruapan í Mexíkó til að minnast borgarstjórans Carlos Manzo sem var myrtur í fyrra meðan hann tók þátt í hátíðarhöldum á degi hinna dauðu.Manzo barðist ötullega gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í héraði sínu, Michoacán. Hann var mjög sýnilegur á samfélagsmiðlum, fór í eftirlitsferðir með lögreglumönnum og var viðstaddur handtökur.Vegna þessa óttuðust margir að hann yrði ekki langlífur. Á endanum fór það svo að sautján ára amfetamínfíkill var gerður út af glæpagenginu CJNG til að skjóta Manzo til bana.Hann stóð mitt í mannþröng sem var saman komin til að halda dag hinna dauðu hátíðlegan þegar ráðist var að honum. Ungi amfetamínfíkillinn var skotinn á staðnum af lífvörðum Manzos.Hundruð gengu í gær fylktu liði að torginu þar sem bo
Gengu í minningu Carlos Manzo sem barðist gegn glæpagengjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar