Tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna manndráps í Breiðholti

Tveir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 9. nóvember grunaðir um aðild að manndrápi í Breiðholti í nótt.Fyrr í dag var sagt frá því að íslenskur maður á fertugsaldri og faðir hans væru í haldi lögreglu.Tökumaður fréttastofu var við Héraðsdóm Reykjavíkur í kvöld þegar lögregla kom með annan mannanna og þegar ekið var með hann á brott. Síðar fékkst staðfest í tilkynningu frá lögreglu að báðir mennirnir hafi verið látnir sæta gæsluvarðhaldi.Sonurinn er talinn hafa beitt hnífi í átökum við tvo menn. Sá sem lifði árásina af er mikið særður og er á gjörgæsludeild.Elimar Hauksson, verjandi mannsins, segist ekki mega tjá sig um málið á þessu stigi. Hann segir að þeir hafi tekið sér lögbundinn frest til að ákveða hvort varðhaldsúrskurður Héraðsdóms verði kærður til Landsréttar.Karl
Tveir úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna manndráps í Breiðholti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar