Bókabúðir bæði á Írlandi og Norður-Írlandi hafa aukið sölu sína á bókum rithöfundarins Sally Rooney. Bækurnar voru teknar úr sölu á Bretlandseyjum eftir að útgefandi hennar, Faber, sagði ekki hægt að greiða Rooney sölutekjur af bókunum.Það er vegna þess að hún sagðist ætla að láta ágóðann renna til samtakanna Palestine Action, sem eru á bannlista breskra stjórnvalda samkvæmt skilgreiningu hryðjuverkalaga. Á sama lista eru til að mynda Hezbollah-hreyfingin í Líbanon og palestínsku vígasamtökin Hamas.Bækur Rooney hafa notið fádæma velgengni en meðal þekktra bóka sem hún hefur skrifað eru Conversations with Friends og Normal People, sem báðar hafa verið þýddar á íslensku og heita Okkar á milli og Eins og fólk er flest. Samnefndir þættir byggðir á síðarnefndu bókinni fóru sigurför um heiminn þ