Þýska lögreglan rannsakar mál þar sem nálar, málmskrúfur og aðrir hvassir hlutir fundust í sælgæti sem börn söfnuðu á hrekkjavökunni. Deutsche Welle greinir frá.Tilkynningar bárust frá nokkrum héröðum í Þýskalandi, þar á meðal frá Þýringalandi, Baden-Württemberg, Bæjaralandi, Neðra-Saxlandi og Rínarlandi-Pfalz.Í einu tilfelli í Nürnberg beit barn í falda nál en varð ekki meint af. Þá er greint frá að minnsta kosti tveimur tilvikum þar sem nálar voru vandlega faldar svo ekki væri hægt að koma auga á þær.Lögreglan telur þetta vera viljaverk og að málmhlutirnir hafi verið settir í sælgætið til að valda skaða. Mörg tilfellanna eru rannsökuð sem tilraun til alvarlegrar líkamsárásar. Enginn er grunaður að svo stöddu. NÁL Í SÆLGÆTI Á ÍSLANDI REYNDIST HREKKUR Í gær tilkynnti Lögreglan á Norðurl