Vísuðu lögreglu á hnífinn

Lögregla hefur lagt hald á hníf sem hún telur að hafi verið beitt í árás í Breiðholti í nótt. Einn lést af áverkum sínum eftir árásina og annar er á gjörgæslu. Þrír voru handteknir og eru í haldi lögreglu. Reikna má með að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum þeirra fyrir héraðsdómi í kvöld.Lögregla lagði hald á hníf í fjölbýlishúsi í Breiðholti. Þrír eru í haldi vegna rannsóknar á manndrápi í nótt. Þeir vísuðu lögreglu á hnífinn.Lögreglu var tilkynnt um líkamsárás laust fyrir klukkan tvö í nótt. Þegar hún kom á vettvang á móts við Austurberg og Hraunberg í Breiðholti voru þar tveir karlmenn með alvarlega áverka. Þeir voru fluttir á bráðamóttöku þar sem annar þeirra var úrskurðaður látinn. Hinn er á gjörgæsludeild og er ástand hans stöðugt sagði lögregla í tilkynningu fyrir hád
Vísuðu lögreglu á hnífinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar