Matarpöntunum fækkaði eftir verðhækkunina í september

Færri nýttu sér matarþjónustu Reykjavíkurborgar í haust í samanburði við sama tíma í fyrra. Verð máltíðanna var hækkað um allt að 72% í september.Velferðarsvið rekur matarþjónustu sem er bæði veitt í mötuneytum og með því að senda mat heim til fólks. Heimsendar máltíðir eru fyrir þá sem ekki geta eldað sjálfir – til dæmis vegna aldurs eða fötlunar – og hafa ekki tök á að borða í félagsmiðstöðvum.Eftir að verð hækkaði hafa færri máltíðir selst. Samkvæmt svari velferðarsviðs við fyrirspurn fréttastofu fækkaði seldum máltíðum um 10,7% á milli ágúst og september. Sé miðað við júlímánuð frekar nemur fækkunin í september 15,2%.„Fækkunin varð sérstaklega áberandi milli ágúst og september, þegar heildarfjöldi pantana dróst saman úr 26.107 í 23.304, eða um 10,7%. Mötuneytispöntunum fækkaði um 1.857
Matarpöntunum fækkaði eftir verðhækkunina í september

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar