Grunur leikur á um að stöndug íslensk fyrirtæki með gott orðspor hafi verið nýtt til peningaþvættis af skipulagðri glæpastarfsemi í umfangsmiklu máli sem lögregla hefur á sínu borði. Nokkur skotvopn voru haldlögð í samstilltum aðgerðum lögreglu þar sem átján manns í heildina hafa verið handteknir.