Rannsaka bensínsprengjuárás sem tilraun til manndráps

Franskur lögreglumaður brenndist illa þegar bensínsprengju var kastað að honum í mótmælum í París í gær. Sprengjan sprakk við fætur mannsins og læstist eldurinn í föt hans. Maðurinn hlaut annars stigs bruna. Lögregla rannsakar málið sem tilraun til manndráps. Enginn hefur verið handtekinn.Mótmæli héldu áfram í Frakklandi í gær, þriðju helgina í röð, en minna var um skemmdarverk en áður. Þó voru hátt í 800 handteknir.
Rannsaka bensínsprengjuárás sem tilraun til manndráps

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar