Lögreglunni á Norðurlandi eystra hefur verið tilkynnt um nálar sem fundust í sælgæti sem dreift var á hrekkjavöku í gær. Þær fundust í nokkrum súkkulaðistykkjum.„Við biðjum foreldra um að yfirfara það sælgæti sem börn þeirra fengu í gær og gæta varúðar. Ef einhverjir vita um sams konar tilvik hvetjum við viðkomandi til þess að tilkynna það til lögreglu,“ segir í tilkynningu sem birt er á Facebook-síðu lögreglunnar.Þá segir að aðeins ein tilkynning hafi borist um aðskotahlut í sælgæti.