Hundi bjargað í eldsvoðanum í Norðlingaholti

Maðurinn sem býr í íbúð sem kviknaði í í Norðlingaholti í gærkvöld flúði íbúðina með því að fara fram af svölum sínum af þriðju hæð. Þetta segir nágranni hans við fréttastofu. Húsið sem kviknaði í stendur við Reiðvað.Maðurinn var fluttur á slysadeild og skoðaður fyrir reykeitrun.Slökkviliðið bjargaði hundi úr brennandi íbúð í Norðlingaholti í gærkvöld. Sá sem býr í íbúðinni komst út með því að fara fram af svölunum.Annar nágranni sem varð vitni að atburðinum í gær segir við fréttastofu að hundur hafi orðið eftir á svölunum. Slökkviliðsmenn hafi reist stiga og komið niður með hundinn um stigaganginn. Þá var búið að ná nægilegum tökum á eldinum til þess að fara þá leið út.Eldurinn kom upp á tólfta tímanum í gær og allt tiltækt slökkvilið var kallað til. Slökkvistarfi lauk um klukkan eitt í n
Hundi bjargað í eldsvoðanum í Norðlingaholti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar