Feðgar í haldi vegna rannsóknar á manndrápi

Íslenskur maður á fertugsaldri og faðir hans eru á meðal þriggja sem eru í haldi í tengslum við rannsókn á manndrápi í Breiðholti í nótt, samkvæmt heimildum fréttastofu.Sonurinn er talinn hafa beitt hnífnum á tvo menn eftir átök á milli þeirra. Sá sem lifði árásina af er mikið særður og á gjörgæsludeild. Hnífurinn er enn ófundinn, eftir því sem heimildir fréttastofu herma.Samkvæmt upplýsingum fréttastofu eru feðgarnir jafnframt báðir með áverka en mismikla. Faðirinn er tæplega sextugur. Ekki liggur fyrir hver aðkoma hans var. Fram kom í tilkynningu lögreglu fyrir hádegi að þrír væru í haldi vegna málsins en fréttastofa hefur ekki upplýsingar um hver sá þriðji er.Árásin var framin utandyra á horni Hraunbergs og Austurbergs og þar hefur einhver skilið eftir blóm og kerti til minningar um hin
Feðgar í haldi vegna rannsóknar á manndrápi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar