Hrekkjavaka sækir á en gerir ekki út af við öskudag

Umstang í kringum hrekkjavöku hefur gjörbreyst á Íslandi og þekktist ekki fyrir örfáum áratugum. Nú klæðast börn grímubúningum á hrekkjuvöku en líka á öskudag, sem var aðaldagurinn hér áður fyrr. Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands segir að hrekkjavaka hafi þó ekki gengið af öskudegi dauðum: „Nei, ég myndi nú ekki alveg segja það. Þetta eru svona að einhverju leyti svolítið ólíka hátíðir eða ólíkir hátíðisdagar fyrir utan náttúrulega að vera á alveg sitthvorum tíma ársins. Þá er eins og hrekkjavakan feli í sér aðeins meiri hrylling heldur en öskudagurinn. Og það sé svona einkenni hennar. Og þá er náttúrulega gengið í hús en á öskudeginum í fyrirtæki. Þannig að þetta er svona aðeins ólíkt þó að það sé margt líkt líka með búningunum og þessu öllu saman.“ Rætur
Hrekkjavaka sækir á en gerir ekki út af við öskudag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar