Tillaga ríkissáttasemjara til samninganefnda Kennarasambandsins, ríkis og sveitarfélaga um lausn í deilu þeirra fólst í því að endurskoðunarpunktur var færður til 15. mars, samkvæmt upplýsingum frá Ástráði Haraldssyni ríkissáttasemjara. HVAÐ ER ENDURSKOÐUNARPUNKTUR? Það er tímapunktur í kjarasamningunum, forsenduákvæði, þar sem kjarasamningurinn er rýndur og kannað hvort forsendur hans hafi staðist.Í kennarasamningnum var slíkur tímapunktur í gær, þar sem kennurum fannst forsendur kjarasamningsins hafa brostið vegna þess að kennarasambandið taldi að vinnan við virðismatið hefði gengið of hægt. Og kennarar hefðu þá getað sagt kjarasamningnum upp fyrir miðnætti í gær.Ríkissáttasemjari bauð deiluaðilum á sinn fund í gær og lagði fram tillöguna um nýjan endurskoðunarpunkt. HVAÐ ER VIRÐISM