Binance opnar fyrir úttektir á ný

Fólk getur aftur tekið út rafmyntir í kauphöllinni Binance. Rafmyntum að andvirði á áttunda hundrað milljarða íslenskra króna var stolið í tölvuárás á fimmtudag. Eftir það frysti Binance eignir sínar og lokaði fyrir úttektir.Bandaríska alríkislögreglan (FBI) segir norðurkóreska hópinn TraderTraitor bera ábyrgð á ráninu sem er talið það stærsta sinnar tegundar til þessa. Binance er stærsta rafmyntakauphöll í heimi.FBI segist hafa orðið þess áskynja að einhverjir á vegum TraderTraitor hafi keypt aðrar rafmyntir fyrir ránsfenginn. Stofnunin hvetur einkafyrirtæki til að koma í veg fyrir viðskipti sem gætu verið á vegum hópsins.Binance hefur heitið því að taka á sig fjárhagslega höggið sem hlaust af ráninu. Fyrirtækið segist hafa nýtt eigið fé til að bæta upp fyrir 90% af ránsfénu nú þegar.
Binance opnar fyrir úttektir á ný

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar