Danski lyfjarisinn Novo, sem hafði þá nýverið breytt nafninu sínu úr Novo Nordisk, hélt markaðsdag 21. september. Forsvarsmenn fyrirtækisins sögðust hlakka til að kynna framtíðaráform sín og vera sannfærðir um að framtíðin væri björt. Ekki væri samt nóg að starfsmennirnir væru einhuga, það þyrfti líka að sannfæra alla hina.„Þetta byrjar með smá sögu, þar sem við segjum hvert við ætlum að fara, hvernig við ætlum að komast þangað og, það sem meira máli skiptir, hvernig ætlið þið að veita okkur aðhald á þeirri leið,“ sagði Mike Doustdar forstjóri fyrirtækisins. Fyrir áhugasama er sex tíma upptaka frá þessum degi á Youtube. Styttri útgáfa af því fylgir hér síðar.En aðeins að sögu fyrirtækisins. Daninn August Krogh fékk Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði árið 1920. Ári seinna var honum boðið til Ban