Það ætlaði allt um koll að keyra í nótt og má leiða líkur að því að hinir ýmsu hrekkjavökufögnuðir hafi ýtt undir óeirðirnar. Þá fór í það minnsta eitt unglingapartí úr böndunum og voru tveir kærðir fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu sem og að bera vopn.