Fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru fullar og rúmlega það eftir hrekkjavökunóttina að því er fram kemur í dagbók lögreglu eftir nóttina.Mestur erill var á lögreglustöð 1 sem sinnir Austurbæ, Vesturbæ, Miðbæ og Seltjarnarnesi. „Frávik í hegðun virðast þemað,“ segir í dagbókinni. VOPNABURÐUR Í UNGLINGAPARTÍI Lögregla var kölluð að unglingapartíi sem fór úr böndunum. Tveir voru þar kærðir fyrir vopnaburð og að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu.Þá hrækti einn í andlit sjúkraflutningsmanna.Lögregla hafði afskipti af ökumanni sem var án réttinda en hafði valdið umferðaróhappi, unnið eignaspjöll, ekið undir áhrifum fíkniefna ásamt öðrum smærri umferðarlagabrotum.Þá voru höfð afskipti af mörgum í skemmtanalífinu í miðborginni fyrir það sem lögregla kallar frávik í hegðun og segir h