Vindátt verður suðlæg eða suðvestlæg, víða 5-13 m/s, í dag. Víðáttumikil hæð vestur af Írlandi stjórnar veðrinu á landinu í dag. Það verður dálítil væta með köflum en lengst af þurrt á Norðaustur- og Austurlandi.Þetta kemur fram í hugleiðingu veðurfræðings Veðurstofunnar.„Það hlýnar smám saman, hiti yfirleitt 4 til 9 stig seinnipartinn. Í kvöld gengur úrkomubakki inn yfir vesturhluta landsins með samfelldri rigningu.“Veðurhorfur á landinu á morgun:Á morgun beina lægð yfir Suður-Grænlandi og hæðin við Bretlandseyjar til okkar hlýrri suðlægri átt, víða kaldi eða strekkingur en allhvasst í vindstrengjum á norðvestanverðu landinu. Áfram súld eða rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en þurrt að mestu í öðrum landshlutum. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast fyrir austan.