Búlgarar velja á milli Evrópu og Rússlands í dag

Búlgarar ganga að kjörborðinu í seinni umferð forsetakosninga í dag.Iliana Iotova er forseti Búlgaríu en hún þykir höll undir Rússland.EPA / BORISLAV TROSHEVKosningabaráttan hefur verið hörð en frambjóðendurnir tveir eru með gjörólíka sýn á stríðið í Úkraínu og tengsl Búlgaríu við Rússland.Sitjandi forseti, Iliana Iotova vill eiga í frekari samskiptum við rússnesk stjórnvöld og hún er andvíg hernaðaraðstoð við Úkraínu. Mótframbjóðandi hennar er Andrey Gyurov hagfræðingur en hann hallar sér meira að Vesturlöndum.Í fyrri umferð tókst hvorugum frambjóðandanum að sækja sér meirihluta. Þá var Iotova með 35% atkvæða en Gyurov með 32%. Í fyrri umferðinni var kosningaþáttaka enn fremur sögulega lág en aðeins 23% Búlgara greiddu atkvæði.
Búlgarar velja á milli Evrópu og Rússlands í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar