Ég var vel virkur og líflegur krakki og sennilega líka uppátækjasamur. Ekki barnanna bestur en samt sem áður með innra bremsukerfi sem virkaði oftast þegar á þurfti að halda. Skólinn var þrísetinn með 30 börn í bekk og fimm til sex bekki í árgangi þar sem börnum var skilmerkilega skipað í bekki eftir „getu“ frá „gáfuðum“ börnum niður í „tossabekk“....